 |
Gisting
Við bjóðum upp á gistingu og dvöl á eyðijörðinni
Stórutungu, þar er gamalt íbúðarhús
með tveimum íbúðum. Á neðri hæðinni
eru 5 tveggjam. svefnherbergi, baðherbergi með sturtu, stofa og
eldhús. Í stofu er 10-12 manna matarborð og 6 manna borð
í eldhúsi. Efri hæðin, er undir súð og
er með sér inngangi, þar eru 2 svefnherbergi, með tvemum
og þremum rúmum, baðherbergi með baðkari m/sturtu,
stofa og eldhús.Við innganginn á efri hæðina
er lítið salerni og þvottahús með vaski og svelg
í gólfi. Í eldhúsunum eru venjuleg heimilistæki,
ísskápar, örbylgjuofnar, leirtau og algeng eldhúsáhöld.
Innangengt er á milli íbúðanna. |
 |
Aðstaðan og umhverfið
Húsið stendur á lækjabakka með svæfandi
niði frá smáfossi, og býr yfir sálarfriði.
Stóratunga er á rólegum stað, úr alfaraleið
6 km. frá aðalvegi, og býður upp á margar skemmtilegar
göngu og reiðleiðir t.d.að Aldeyjarfossi og í Svartárgil.
Seld eru veiðileyfi í Svartá, sem er skemmtileg urriðaá
með fluguveiði og sleppingu. Íbúðirnar eru leigðar
hver fyrir sig, eða saman,einn sólarhring eða lengur og einnig
er hægt að fá eitt og eitt herbergi með eldunaraðstöðu,
hvort heldur er svefnpokapláss eða rúmföt, án
sængurvera. Einnig er hægt að fá uppbúin rúm
með handklæði og aukadýnur.
Staðurinn er upplagður fyrir fjölskyldusamveru, afmæli
eða minni ættarmót þar sem næg tjaldstæði
eru á túninu og nýta þá aðstöðuna
í húsinu, og t.d. göngu-, veiði- og hestahópa.
Góðir hagar fyrir marga hesta. |
 |
Nokkrar vegalengdir frá Stórutungu
| Kiðagil gisti og veitingarstaður |
20 km |
| Fosshóll (Goðafoss) verslun, veitingastaður og handverksmarkaður |
40 km |
| Jarðböðin í Mývatnssveit (farið yfir
gróið heiðarland) |
55 km |
| Húsavík og Akureyri |
90 km |
|
 |
|
 |
 |
 |
 |